SagaPro
4.966 kr.
Þú færð 20% afslátt ef þú gerist áskrifandi
Smelltu hér til að kynna þér málið
SagaPro er oft tekið til þess að:
- Bæta svefn með því að fækka salernisferðum á nóttu
- Fækka salernisferðum í löngum göngum, hjólreiðum, golfi og skíðum
- Bæta lífsgæði hjá einstaklingum með ofvirka þvagblöðru
- Getur dregið úr bólgum
SagaPro – Fæðubótarefni
Rannsóknir benda til að SagaPro dragi úr tíðni þvagláta hjá þeim sem eru með litla eða minnkaða blöðrurýmd. Einkennin lýsa sér í mikilli þvaglátsþörf og getur verið með eða án þvagleka. Ef þú pissar 6-8 sinnum á dag þá er líklegt að þú sért með ofvirka þvagblöðru Truflun á nætursvefni vegna klósettferða er einnig algeng ástæða ofvirkrar þvagblöðru.
SagaPro er íslensk náttúruvara sem inniheldur handtínda íslenska hvönn. Hvönn hefur verið ein merkasta lækningajurtin í Norður-Evrópu í mörg hundruð ár. Virka efnið í vörunni er unnið úr íslensku ætihvannarlaufi og hefur hún verið rannsökuð í yfir 25 ár af vísindamönnum Saga Natura. Lauf ætihvannarinnar eini hluti plöntunnar sem hefur sýnt bein áhrif af fækkun þvagláta. SagaPro fækkar tíðum þvaglátum með því að hjálpa þvagblöðrunni fyllast betur fyrir hverja tæmingu.
Varan er klínískt rannsökuð og hefur í gegnum árin sannað virkni sína og bætt lífsgæði fjölda einstaklinga. Engar þekktar aukaverkanir.
Fækkaðu salernisferðunum
Með því að taka 1-2 töflur af SagaPro er hægt að koma í veg fyrir eða fækka salernisferðum bæði að nóttu og degi. Tíð þvaglát valda jafnan mikilli truflun á nætursvefni og finna margir mun á gæðum svefnsins eftir að inntaka hefst á SagaPro. Jafnframt hafa lífstílshópar í auknum mæli verið að taka SagaPro til að fækka salernisferðum á meðan áhugamálin eru stunduð að kappi. Þetta á við t.d. hlaupara, golfara, hjólreiða – og göngufólk.
Reynslusögur frá viðskiptavinum Saga Natura
Sigrún Birna Kristjánsdóttir, lögfræðingur í framkvæmdateymi Þorpsins tengslaseturs
„Ég heyrði af SagaPro fyrir um tveimur árum og ákvað að gefa því séns því ég þurfti svo oft á salernið á nóttunn. Mér fannst lygilegt hversu fljótt það virkaði, því strax á þriðja degi var ég farin að finna áþreifanlegan mun og þurfti bara að fara aðeins einu sinni á klósettið í stað þess að fara tvisvar til þrisvar sinnum, og í dag er bara hending ef ég vakna til að fara á klósettið á næturna. Það er mikil og góð breyting,“.
Hægt er að lesa viðtalið í heild sinni hér
Sigursteinn Steinþórsson, fyrrum lögregluþjónn
„Eftir að ég byrjaði að taka SagaPro sef ég betur og tíðni salernisferða á nóttunni hefur snarminnkað. Þetta er veruleg breyting og rosalegur munur að geta sofið vel. Ég fæ dýpri og óslitinn svefn í lengri tíma og vakna úthvíldur á morgnanna og mér líður mun betur út allan daginn.“
Hægt er að lesa viðtalið í heild sinni hér:
Innihald og notkun
Innihald: Hrísgrjónamjöl, SagaPro® hvannarlaufaextrakt, bambus extract, magnesium sterat, hylki úr jurtabeðmi (HPMC).
Ráðlagður neysluskammtur:1-2 hylki á dag, yfir daginn eða fyrir svefn eftir þörfum.
Mælt er með að taka 2 hylki fyrstu þrjá dagana þegar byrjað er að nota SagaPro.
Eitt hylki inniheldur: SagaPro® hvannarlaufaextrakt 100 mg
Notkun
Við mælum með 1-2 töflum og er einstaklingsbundið á hve stuttum tíma virknin kemur fram. Fólk hefur sagst merkja áhrif frá allt niður í fimm daga frá upphafi notkunar. Margir finna ekki fyrir breytingu fyrr en eftir lengri tíma, en fjörutíu daga skammtur á að nægja til að taka allan vafa um hvort SagaPro gagnast eða ekki. Rétt er að leita læknis ef um tíð þvaglát er að ræða því orsakir fyrir þeim geta verið margvíslegar. Þetta á sérstaklega við um karlmenn.
Pakkningarstærð: 60 hylki.
Geymist á þurrum og svölum stað þar sem börn ná ekki til.
Ekki er ráðlagt að neyta meira af vörunni en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um.
Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu.
Barnshafandi konum, konur með barn á brjósti, börn undir 18 ára aldri og fólk með sjúkdóma er ávallt ráðlagt að leita álits læknis eða annars sérfræðings áður en tekin eru inn fæðubótarefni.
Fróðleikur
Melkorka Kvaran, hjúkrunarfræðingur og hlaupari hefur góða reynslu af SagaPro í tengslum við langar hlaupaæfingar og maraþonhlaup. Hlauparar og íþróttafólk þarf að huga vel að vökvajafnvægi líkamans og drekka nóg sem eðli málsins samkvæmt kallar á tíðari klósettferðir. Tafirnar voru farnar að trufla Melkorku á hlaupunum. Með því að taka SagaPro gat ég lengt æfingarnar og aukið gæði þeirra. Ég kemst einfaldlega lengra.
Sigrún Birna Kristjánsdóttir, bókari, Doulu-nemi og lögfræðingur, ákvað samt að gefa SagaPro séns því ég þurfti svo oft á salernið á nóttunni og fannst lygilegt hversu fljótt það virkaði. Strax á þriðja degi var ég farin að finna áþreifanlegan mun og þurfti bara að fara aðeins einu sinni á klósettið í stað þess að fara tvisvar til þrisvar sinnum. Í dag er bara undantekning ef ég vakna til að fara á klósettið á næturna. Það er mikil og góð breyting.
Í hvannalaufum eru sértæk efni sem slaka á blöðrunni þannig að hún fyllist alveg og þarf ekki að tæmast fyrr en hún er raunverulega full. Þessi efni er einungis að finna í hvannalaufum, en ekki öðrum hlutum hvannarinnar. Því getur SagaPro haldið þvagblöðrunni rólegri og fólk sofið vært í gegnum nóttina. Saga Natura hefur hefur framleitt bætiefnið SagaPro úr íslenskri ætihvönn, en SagaPro var upphaflega rannsakað og þróað af Sigmundi Guðbjarnarsyni, fyrrverandi rektor Háskóla Íslands.
Skyldar vörur
Þú færð 20% afslátt ef þú gerist áskrifandi
Smelltu hér til að kynna þér málið
AstaSkin getur:
- Aukið náttúrulegan raka húðarinnar
- Minnkað bólur
- Bætt exem þ.m.t. sólarexem
- Bætt sprungna og þurra húð
Þú færð 20% afslátt ef þú gerist áskrifandi
Smelltu hér til að kynna þér málið
AstaEye er oft tekið við:
- Augnbotnahrörnun
- Augnþurrki
- Hrakandi sjón
- Til að bæta augnheilsu
Þú færð 20% afslátt ef þú gerist áskrifandi
Smelltu hér til að kynna þér málið
Íslenskt Astaxanthin getur:
- Minnkað bjúg og bólgur
- Aukið úthald og endurheimt
- Verndað vöðva, hjarta- og æðakerfi, heila, augu og húð
- Verndað húðina gegn UV geislum sólar
Þú færð 20% afslátt ef þú gerist áskrifandi
Smelltu hér til að kynna þér málið
SagaMemo getur:
- Skerpt athygli og einbeitingu
- Minnkað heilaþoku
- Stutt við almenna vitsmunaheilsu
- Haft jákvæð áhrif á minni
Þú færð 20% afslátt ef þú gerist áskrifandi
Smelltu hér til að kynna þér málið
Energy er oft tekið til þess að:
- Bæta einbeitingu
- Draga úr þreytu
- Minnka kvíða
- Draga úr streitu
- Bæta hormónastarfsemi